Súkkulaðihjúpað engiferkex

007 Festi kaup á guðdómlegu kexi í Debenhams um daginn; um  var að ræða súkkulaðihjúpað engiferkex. Fyrir þá sem ekki vita, þá lumar Debenhams oft á tíðum á ýmsu breskættuðu góðgæti, sem ekki fæst á hverju strái.

Kexið góða var í fagurri áldós og var hver kaka umlukin einhvers konar smjörpappír. Ekki fældu þessar fögru umbúðir bloggara frá því að úða innihaldinu í sig og fyrr en varði var dósin fagra galtóm.

Ég hef þá áráttu að finna mig knúna til að endurskapa dýrðina í hvert sinn sem ég smakka eitthvað gott. Súkkulaðihjúpaða engiferkexið er þar engin undantekning - upp voru brettar ermar og hafist  handa við bakstur og afraksturinn var býsna góður. Eiginlega betri en prótótýpan :-)

006 Við upphaf baksturs var ákveðið að kexið yrði fremur smátt í sniðum. Það er bara eitthvað svo dömulegt að stinga upp í sig smágerðum kexkökum :-) Þeir sem ekki fallast á það geta auðvitað bakað stærri útgáfur, eða einfaldlega troðið nokkrum upp í sig í einu.

Þar sem kexið var smávaxið,  fengust fleiri kökur en ella. Nánar tiltekið voru þær um 150 talsins. Það mun kannski duga fram að næstu helgi sé hófsemi gætt og vel haldið á spöðum.

Uppskriftin:

250 g mjúkt smjör (gjarnan ósaltað)

200 g sykur

1 egg og 1 eggjarauða

1 tsk vanilludropar

400 g hveiti

2 tsk engiferduft

7 msk sultað engifer, saxað smátt (fæst m.a. í Nóatúni og Hagkaupum)

 

Smjör og sykur hrært saman, eggi, eggjarauðu og vanillu bætt út í.  Hveiti hrært saman við. Engifer bætt út í. Hnoðað í nokkrar lengjur, pakkað inn í plastfilmu og kælt í ísskáp.

Skorið í þunnar sneiðar og bakað í 10-12 mínútur.

005 Látið kexið kólna vel áður en súkkulaði er sett ofan á. Ég notaði um 200 g af bræddu suðusúkkulaði, en það má alveg örugglega vera meira eða minna.  Sett ofan á hverja kexköku með teskeið og látið storkna í ísskáp.


Brownies og Osama bin Laden

Þarf greinilega að vera ábyrgur bloggari. Hef ekki kíkt á bloggið í langan tíma, komnar athugasemdir og alles :-) Sorry mates... skal bæta þetta.

Þakka Kaupinhafnarkvinnunni Fjeldsted sérstaklega fyrir hnyttnar athugasemdir - mikið ljómandi er hægt að vera skemmtilegur! Sannar enn og aftur kenningu mína um að forty-something konur er alveg ógeðslega fyndnar.

Annars sit ég hér við sjónvarpsgláp - á dagskrá er heimildamynd sem ber nafnið "Hvar í veröldinni er Osama bin Laden." Þetta þykir mér verðugt umfjöllunarefni og vonast til að verða nokkurs vísari að áhorfi loknu.

Téður Osama er osama.jpg nefnilega svo vel falinn, að færustu njósnarar stórveldanna hafa ekki verið þess megnugir að finna hann, þrátt fyrir þrotlausa leit í árafjöld. Eitt sinn var einhverjum skrilljónum dollara heitið til höfuðs honum, næstu vikur á eftir hafði ég augun hjá mér hvar sem ég fór og skyggndist sérstaklega eftir fúlskeggjuðum mönnum í hvítum kjólum og með vefjarhetti,  en án árangurs. Þarna varð ég af vænni summu. Er þó ekki búin að gefa upp alla von....

Brownies var bakað um daginn - ekki er úr vegi að hér komi uppskrift af þessu dásamlega slikkeríi. 

Uppskriftin dugar í eina væna ofnskúffu og eitt meðalstórt ofnfast form.  Herlegheitin voru etin með þvílíkum ógnarhraða, að ekki náðist að festa kökuna á filmu. Þess í stað kemur mynd af Osama.

1 og 1 /3 bolli smjör og smjörlíki, blandað til helminga

350 gr suðusúkkulaði eða annað dökkt súkkulaði

3 bollar sykur

3 tsk vanilludropar

6 egg

2 bollar hveiti

1 1/2 bollar saxaðir valhnetukjarnar

---

Ofn hitaður í 180°C. Setjið bökunarpappír í ofnskúffuna og formið, allrabest er að nota silikonpappír (margnota bökunarpappír, ef slíkt fínerí er til á bænum). Smjör/smjörlíki og súkkulaði er brætt saman í potti við vægan hita og kælt aðeins. Sykur, vanilludropar og egg er þeytt á miklum hraða í um 5 mínútur, súkkulaði/smjörblöndu bætt varlega út. Hveiti hrært varlega saman við og hnetum bætt útí að endingu. 

Bakað í 40-45 mínútur, eða þar til kakan er aðeins farin að losna frá forminu. Látið kólna áður en kakan er skorin í bita. 

 

 


Sunnudagskakan

003 Kaka var bökuð í gær. Fyrir valinu varð kaka sem ber hið hljómfagra heiti "Starlight yellow cake" og er hana að finna í uppskriftabók Betty Crocker, 40th Anniversary Edition sem kom út á því herrans ári 1991 og hefur fylgt mér lungann af fullorðinsárum mínum.

BC

 

 

Þessi bók er ein sú besta sem ég á í fórum mínum, í henni eru frábærar uppskriftir og allt gefið upp í bollamálum sem mér þykir mikill kostur.

Hún er sett upp á mjög einfaldan hátt og þess gætt að enginn velkist í vafa um hvað við er átt. Til dæmis er kafli fremst í bókinni sem heitir "Food terms you should know". Þar segir t.d. "Bake = cook in oven", "Boil= Heat until bubbles rise continuously and break on the surface" og "Mix= Combine ingredients". Hreinasta snilld :-) Þetta er líklega gert til að fyrirbyggja hugsanlegar málsóknir.

001

Fyrir þá sem vaða í villu og svíma og halda að téð Betty sé eingöngu framleiðandi duftkakna og kökukrems í dósum, þá skal það hér með leiðrétt. Betty Crocker er nefnilega Helga Sigurðar þeirra Ameríkana. Eða næstum því. Helga Sigurðar var til í raun og veru, hún var vel metinn hússtjórnarkennari. Betty Crocker er aftur á móti vörumerki og hefur aldrei lífsandann dregið. En nóg um það. Til að útbúa kökuna þarf þetta:

  • 2 1/2 bolli hveiti
  • 1 bolli sykur (í uppskriftinni er meiri sykur, en ég minnkaði hann)
  • 3 1/2 tsk lyftiduft
  • 1 tsk salt
  • 1 1/4 bolli mjólk
  • 1/2 bolli smjör og smjörlíki til helminga, mjúkt
  • 3 tsk vanillusykur
  • 3 egg

Ofn hitaður í 180°C. Tvö meðalstór hringlótt kökuform smurð. Öllum hráefnum blandað saman og hrært rólega í 30 sekúndur. Hrært á meiri hraða í um 3 mínútur. Skipt á milli kökuforma.

Bakað í um 30 mínútur.

Í súkkulaðikremið þarf þetta:

  • 1/ 3 bolli smjör
  • 150 gr suðusúkkulaði, brætt og kælt lítillega (Já, já, ég veit að þetta er heilmikið súkkulaði...)
  • 1 1/2 bolli flórsykur
  • 1 tsk vanillusykur
  • 2 msk mjólk

Smjöri og súkkulaði blandað saman.  Flórsykur þeyttur saman við, mjólk og vanillu bætt útí að lokum. Þetta dugar á milli kökubotnanna og ofan á kökuna. 

002 Var að prófa þessa köku í fyrsta skipti og hún verður bökuð aftur, hún er nefnilega virkilega góð.  Held hún hafi bara áunnið sér sæti á topp 100 listanum:-)


Tveir sælir sunnudagar

Lítið hefur verið um blogg að undanförnu og ástæðan er klassísk: tímaskortur. Margt hefur verið eldað og þeim mun meira etið, en ekki gefist tími til að deila því með alþjóð.

007

 

 

 

 

 

 

 

  011

Til dæmis var amerískt þema síðasta sunnudagsmorgunn, en þá voru bakaðar amerískar pönnukökur og þær snæddar að þarlendum sið með sírópi og alles. Ákveðið var að fara alla leið, hugsa eins og sannur Kani og láta kaloríuáhyggjur lönd og leið. Sá ásetningur tókst með ágætum.

 

 

 

Til þess að búa til um tuttugu meðalstórar pönnukökur þarf þetta:

  • 3 egg
  • 3 bollar hveiti eða spelt
  • 1 1/2 bolli mjólk
  • 3 tsk púðursykur eða hrásykur
  • 4 msk matarolía
  • 6 tsk lyftiduft eða vínsteinslyftiduft
  • 1/2 tsk salt

Egg eru þeytt og öllu hinu bætt út í. Steikt á vel heitri pönnu, í hverja pönnuköku fer um 1/4 bolli af deigi.  Hlynsíróp er að sjálfsögðu ómissandi með - þeir sem vilja fara alla leið steikja vænan skammt af beikoni og spæla nokkur egg.

039 Í dag er svo aftur upp runninn sunnudagur og þá var búið til nokkuð sem heitir French toast á ensku, rige riddere á dönsku og einfaldlega eggjabrauð á íslensku.

 

 

 

 

 

 

040 Mér finnst enska heitið langflottast, allt sem heitir "French" er eitthvað svo elegant. Ríkir riddarar er líka svolítið flott heiti, þetta er lúxusútgáfan af Fátækum riddurum eða "Arme riddere", munurinn er sá að þeir ríku innihalda egg. Eggjabrauð segir svosem allt sem segja þarf, þetta er nefnilega bara brauð sem er látið liggja í blöndu eggja og mjólkur og síðan steikt við vægan hita upp úr smjöri. 

 

 

 

 

038 Skorpan er skorin af þremur brauðsneiðum og þær síðan skornar í tvennt. Eitt egg pískað og um 1/2 bolla af mjólk blandað saman við. Brauðsneiðarnar lagðar í blönduna og látnar liggja þar stundarkorn. Smjörið er brætt á pönnu og brauðið síðan steikt þar til það er gullinbrúnt.

 

 

 

 

 

041 Þetta má til dæmis bera fram með pönnukökusírópi.

 

 

 

 

 

 

 

042 Hundur fékk hvorki pönnukökur né eggjabrauð, en hefði glaður selt sálu sína fyrir einn bita :-) 


Annar í sushi

004 Aftur var sushi búið til. Með nokkuð sama móti og í gær, nema að nú var bætt við sushi með eggjaköku. Það var býsna gott. Tvö egg voru léttþeytt með u.þ.b. 1/2 dl af kaffirjóma. Panna var hituð við vægan hita, smá ólívuolíu hellt á hana og eggjablöndu hellt út á. Hitinn lækkaður, eggin látin steikjast þar til þetta lítur út eins og pönnukaka. Saltað og piprað. Pannan tekin af eldavél, eggjaköku komið fyrir á disk eða einhverju álíka og látin kólna. Skorin í hæfilega strimla sem hæfa sushi. Eggjakakan passar ansi vel með ferskjum, gulrótum eða gúrkum.

 

 

002 Annars var sami háttur hafður á og í fyrra sushi skiptið, California Rolls í hávegum haft, ásamt lax og grænmeti.

 

 

 

 

 

 

001 Er með sushi á heilanum þessa dagana, talaði t.d. um fátt annað á fréttavaktinni á RÚV í dag. Fór svo að velta því fyrir mér sögu sushi. Googlaði það og skoðaði nokkrar síður. Heimildum ber svosem ekki saman, en ýmist er talað um að sushi þekkist frá fjórðu eða sjöundu öld fyrir Krist. Þó svo að það hafi ekki verið nákvæmlega eins og það þekkist í dag, þá samanstóð það af hrísgrjónum, hráum fiski og grænmeti eða ávöxtum.

 

 

 

003 Get ekki varist því að leiða hugann að mataræði Íslendinga langt fram á síðustu öld, sem virðist hafa samanstaðið af feitum og ljótum mat sem var geymdur í mysu í morknuðum trétunnum. Þegar Japanir voru að dýfa fagurlöguðum sushibitum í wasabi/sojablöndu, stóðu Íslendingar norpandi undir torfkofagafli og stýfðu bringukolla úr hnefa. Þarf ekki að taka fram hvort mér finnst meira heillandi :-) 


Sushisnilld á föstudagskvöldi

018 Sushi var útbúið í kveld. Sushigerð hefur verið á "To do listanum" í 4 ár, en einhverra hluta vegna þurft að víkja fyrir smámunum eins og fjölskyldulífi, flutningum á milli landa, atvinnu, uppeldi barna og hunds, húsbyggingum  og den slags.

Því hefur Sushi verið keypt dýrum dómum á veitingastöðum og Teik átum ýmiskonar.

Þar sem Sushi er svosem ekki ódýrasti  matur sem völ er , þá reiknast mér til að einhverjum tugum þúsunda hafi verið varið í Sushineyslu á undangengnum misserum.

021 En nú er mál að linni. Hér eftir verður það Sushi, sem fjölskyldumeðlimir hyggjast snæða, útbúið innan fjögurra veggja heimilisins. Þetta er nefnilega alveg lygilega einfalt, svakalega skemmtilegt og svo veit maður nákvæmlega hvað maður er að borða og hversu ferskt hráefnið er! Það er ekki slæmt :-)

Hér verður ekki gefin uppskrift af Sushi - á umbúðum Nori þangs og Sushi grjóna eru gefnar býsna nákvæmar leiðbeiningar um hvernig á að tilreiða stöffið.

 

022 Svo eru nokkrar ansi góðar vefsíður sem vísa veginn - ágætt að googla "Sushi recipe" og skoða hvað kemur upp. En mér skilst af  áreiðanlegum Sushi sérfræðingum að til þess að grjónin verði eins og þau eiga að vera, sé mikilvægt að þau fái að kælast eftir suðu þannig að þau verði volg. Þau mega ekki vera köld þegar sykur/hrísgrjónaedikinu er blandað saman við þau, því að þá verða þau ekki "Sticky".

 

 

 

017 Útbúið var bæði Maki og Nigiri. Hef alltaf verið hrifnari af Maki, þannig að ég lagði meiri áherslu á það.  Maki-ið var annars vegar California Roll (sem er mitt uppáhald) en það er með krabbafyllingu, avocado og gúrku. 3-4 surimistangir og 2 tsk majónes (best að nota japanskt ef til er) er grófmaukað í matvinnsluvél. Avocado skorið í örþunna strimla, það sama gildir um gúrku, sem verður að vera kjarnhreinsuð. Hrísgrjón sett á 3/ 4 af Nori-plötu, sesamfræjum stráð yfir, krabbamauk sett á endann, gúrku-og avocadostrimlar þar ofan á og síðan rúllað þétt saman með bambusmottu. Nori festist vel saman, sé örlítið Wasabi sett á kantinn.

Hins vegar var útbúið laxa Maki. Villtur lax (ekki eldislax, sem er yfirleitt allt of feitur og þar af leiðandi ekki góður. Fékk úrvals lax í Fiskiprinsinum í Kópavogi) er skorinn í þunna strimla, hrísgrjón sett á 3/4 af Nori-plötu, sesamfræjum stráð yfir. Örþunnar laxasneiðar settar ofan á, þunnar gulrótarsneiðar (gott að nota ostaskera) og síðan koma þunnar mangósneiðar. Rúllað þétt saman með bambusmottu.

024 Nigiri var annars vegar með lax og gulrót og hins vegar með surimi, mangó og gúrku. U.þ.b. 1 sm breiðum Nori renningi vafið utan um. Gott að hafa í huga að vera með skál með köldu vatni þegar Nigiri er formað. 

 

 

 

 

 

023 Þetta var snætt ásamt engifer, Wasabi og japanskri sojasósu. Svo dásamlega gott.... ætla aftur að búa til Sushi annað kvöld eftir 12 tíma RÚV vakt :-) 

 

 

 

 

 

 

025 Frumburðurinn var borubrattur og ævintýragjarn og snæddi Sushi af áfergju. Sú yngri vildi ekki sjá þetta, kvartaði um ólykt af japönsku kræsingunum og sauð sér spaghetti. Snæddi það síðan með vænum slurk af Hunt´s tómatsósu. Svona er nú smekkur manna misjafn.

 

 

 

 

 

027 Hundurinn hafði mikinn áhuga á krabbakjötinu og uppskar því nokkrar surimi stangir. Allir sáttir og glaðir :-) 

 


Steiktar tortillakökur klikka ekki

A 001 lltaf er verið að leita að einhverju sem er einfalt. fljótlegt og tiltölulega hollt. Tortillakökur eru einstaklega mikið þarfaþing og bjóða upp á mýmarga möguleika. Til dæmis má setja eitthvað gott á þær, rúlla þeim þétt upp og steikja á pönnu við vægan hita í smjöri. Auðvitað má alveg nota eitthvað annað en smjör, en það er bara langbest :-) 

Hér er ein fljótleg tillaga: Pizzusósa, rifinn ostur og skinka. 

 

 

 

002 Pizzusósu smurt á kökuna, skinka og rifinn ostur yfir. Það má auðvitað nota hvaða álegg sem er, t.d. er gott að nota grænmeti eða afganga. Hvað sem er!!

 

 

 

 

 

 

003 Kökunum rúllað upp eins þétt og hægt er.

 

 

 

 

 

 

 

004 Kökurnar steiktar í smjöri við vægan hita. Gott er að byrja á því að láta samskeytin snúa niður.

 

 

 

 

 

 

 

005 Kökurnar skornar niður að lokum ef vill. 

 

 

 


Kryddpopp

012 Popp er æði! Hægt er að gera svo ótal margt við það og þá verður það ennþá meira æði. 

Kryddpopp er afar vinsælt á mínu heimili - það er búið til svona:

3 bollar poppað ósaltað poppkorn (ég poppa alltaf upp á gamla mátann, ekkert örbylgjupopp takk)

3 bollar Cheerios eða hafrakoddar

2 bollar litlar saltstangir, lítil saltkex eða hnetur

1/3 bolli brætt smjör

Tabascosósa

Kanill - algerlega ómissandi, gefur surprise kick :-) 

Aromat

Hér eru engin hlutföll gefin upp af kryddi - um að gera að prófa sig áfram. Öllu blandað saman í eldfast mót, kryddinu bætt útí bráðna smjörið og hellt yfir.

010 Bakað við 180°C í 15 mínútur, gott er að hræra tvisvar sinnum í blöndunni á meðan á bökunartímanum stendur.  Best nýbakað. Tvöfaldur skammtur af þessu var hesthúsaður hér á bæ nú í kvöld fyrir framan sjónvarpið. Geri aðrir betur!


Arancini / Supplí = Hrísgrjónabollur

Eitthvað þurfti að gera við afganginn af Risotto gærkveldsins.  Jújú... það hefði svosem verið hægt að hita það upp. En það er bara ekkert sérlega spennandi. Því var búið til Supplí a.k.a. Arancini – sem eru djúpsteiktar bollur, búnar til úr Risotto, Mozzarella, eggjum og brauðmylsnu.


Eins og svo margt annað í ítölsku matarflórunni ber þessi réttur tvö nöfn. Á Sikiley heitir hann Arancini, en það þýðir lítil appelsína á ítölsku. Í Róm er aftur á móti talað um Supplí og þar er þetta vinsæll skyndibiti. Hef líka heyrt þetta kallað Supplí al Telefono, en það heiti mun vera komið af því að þegar bitið er í bolluna, þá er bráðinn Mozzarellaosturinn eins og þráður. Einhverjum ítölskum gárunga hefur þótt þetta minna á símasnúru. Það finnst mér ekki, auk þess verða símasnúrur sífellt sjaldséðari. En – þetta er skemmtilegt heiti á mat.

007 Risotto afgangur síðan í gær reyndist vera um 2 ½ bolli. Saman við það var hrært einu léttþeyttu eggi. Um ¼ af  ferskum Mozzarellaosti var skorinn í litla bita, einn slíkur ostur er 125 grömm, þannig að þetta gera um 30 grömm osts.

 

 

 

 

 

009

Búnar voru til bollur úr Risotto/eggjablöndunni, gat gert í þær, ostbita stungið þar inn í og síðan lokað fyrir. Alls urðu þetta 11 bollur, en þær geta auðvitað verið fleiri eða færri, það fer eftir stærð. Síðan er hveiti sett í skál, eitt léttþeytt egg í aðra og brauðmylsna í þá þriðju. (Það mega t.d. vera muldir, heimagerðir brauðteningar).

 

 

 

 

011

 Ólívuolía og smjör er hitað í pönnu eða potti, ég á ekki djúpsteikingarpott og ætla mér ekki að eignast slíkt tól. Wokpanna dugar vel til þessara verka. Bollunum er rúllað upp úr hveiti, síðan dýft í eggið og að lokum þaktar brauðmylsnu.  Steiktar upp úr olíu/smjöri þar til gylltar og girnilegar.

 

 

 

 

013 Bollurnar eru gjarnan borðaðar með tómatkryddsósu eða nokkurs konar pizzasósu í Róm.

 

 

 

 

 

 

014

Ég borðaði  mínar með salati og smá parmesan og það var himneskt !


Sælgætisgerð er skemmtileg

Það er svosem til alveg feykilegt úrval af nammi í heiminum og alls ekki óskynsamlegt að spyrja hvers vegna í ósköpunum ætti maður að búa til sitt eigið?

Svarið er: Sælgætisgerð er afar ánægjuleg. Ekki síst fyrir börn (sem finnst reyndar allt gott sem þau búa til sjálf). Fyrirtaks athöfn á rigningardegi.

Hér var búið til konfekt og í það var notað:

002 Dökkt súkkulaði (t.d. suðusúkkulaði)
Rúsínur
Möndlur
Ristuð sólblómafræ
Valhnetur
Marsípan
Rice Krispies
Sulta
Kókosmjöl
Kökuskraut
Cornflakes

Lítil múffuform (fást t.d. í Søstrene Grene)

Hér eru ekki gefin hlutföll né magn og sælgætisgerðin er súpereinföld. Súkkulaðið er brætt í potti við lágan hita og haldið heitu.

001 Súkkulaði sett í botninn á litlu múffuformi og látið storkna í smástund og síðan er hráefni að eigin vali sett í mótið. Síðan er hjúpað með súkkulaði og skreytt að vild. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband